Allt 27 Aug 2008 11:10 pm
Allt & tækni 11 Jul 2008 04:28 pm
Ubuntu 8.04 with Virtualbox (WinXP) on Thinkpad T61
Recently I started working (again) for Já after a 6 months stay @ Miracle. I have tried many times in the past to set up the perfect environment for work. Preferably a environment that offers reliability without limits. I have tried different combinations, including WinXp / WinXp and Linux with dual boot / Linux (Ubuntu), however there is always something. On WinXp you have a little lack of performance and reliability but the worst part is command line intergration (for the advanced user). The dual boot obviously is only good if you use one operating system most of the time because restarting is both time and power consuming. The Linux only trial was a amazing experience until you have to work with Exchange and the whole Microsoft environment. Although there are hacks and options you can use to make the life easier this setup will always be problematic.
Today I have a setup that I believe that will make a world peace (at least in my world). I am running Ubuntu 8.04 and WinXP on Virtualbox. That means that I can have the stability and the performance but still being able to switch easily to WinXp where I have Outlook (mail,calendar,exchange stuff) and Office (for the mean .docx standard). It was pleasantly surpricing how easy this setup was. And I have to say that I am (so far) very pleased with Virtualbox. I am actually glad that I didn’t go for Wmware workstation as I planned. I’m also very surprised of how fast windows is running on Virtualbox, even with limited resources (probably faster than if it was the real OS).

I know and feel that todays Linux OSes are becoming more and more user friendly. Users might even never have to start a shell.. I even believe that Ubuntu is far better for the common user than Windows Vista. At home I’m running Ubuntu 8.04 with Fluxbox. I might post a screenshot some day if anyone asks.
fótbolti 20 Jun 2008 09:06 pm
EM
Magnaður leikur í gær hjá Portúgal og Þýskalandi þar sem Ronaldo var sendur skælandi heim. Frábær skemmtun og stórglæsileg mörk. S.s. eitthvað annað en leikurinn hjá Króötum og Tyrklandi. Maður var alveg pottþéttur á því að Króatar ættu frekar auðveldan leik fyrir höndum en annað kom á daginn. Þegar þetta er skrifað er fyrri hálfleikur framlengingar búinn. Króatar hafa skapað þó nokkur færi en ekki náð að klára þau. Tyrkland er búið að koma töluvert á óvart! Flottir leikir framundan á morgun og sunnudag. Að sjálfsögðu vinnur Holland á morgun og Spánn á sunnudag…

fótbolti 13 Jun 2008 09:52 pm
Búið að standa lengi til..
..að blogga en hingað til hefur ekkert orðið úr því. Kolla meira segja búin að skamma mig fyrir það á skemmtilegan hátt. Annars er gott að frétta, við Fríða erum náttúrulega tiltölulega nýlega búin í prófum. Í stuttu máli þá rúlluðum við þessu upp, sérstaklega Fríða!
Annars gengur lífið sitt vanagang bara vinna og fjör og EM! Það var suddalegur leikur hjá Hollandi og Frakklandi að ljúka rétt í þessu. Ef það hittir þannig á, þá fara Holland og Spánn í úrslit! Mitt lið í þessari keppni er Spánn en annars er mjög gaman að horfa á Hollendinga. Svo verður maður á ferðinni í sveitinni um helgina þar sem verður meðal annars þrítugsafmæli hjá Dodda..
fótbolti & Mótorkross 07 Apr 2008 03:31 pm
Hjólaveður í gær
Í gær var eitt besta hjólaveður ársins hingað til. Við Ingþór létum það að sjálfsögðu ekki framhjá okkur fara og kíktum á rúntinn. Á þessum tíma árs er þó sjaldnast gott færi í gryfjum en hins vegar var alveg frábært færi í snjónum og þeystumst við út um allt þar sem snjóbreiðurnar leyfðu. Ég hef nú farið nokkrum sinnum í snjó á hjólinu en þetta er besta snjófærið hingað til.. Ef þið eruð að velta því fyrir ykkur hvernig það er að vera á krossara á snjó þá er trikkið að vera í nógu háum gír (oft 5. gír) og halda góðri gjöf
svo er það bara að stýra og halda sér. Ég fór bara einu sinni fram fyrir mig! Þetta er í fyrsta skiptið sem hjólið fer í heilann hring á eftir mér hins vegar
Svo er það stórleikur Liverpool vs. Arsenal á morgun í meistaradeildinni. Ég spái 2-1 fyrir Liverpool (Gerrard með mark)…
tækni 07 Mar 2008 02:28 pm
Launchy
Magnað hversu oft maður lendir í því að heyra um eitthvað lífsnauðsynlegt forrit sem er búi að vera í gangi í lengri tíma án þess að þú hafir heyrt á það minnst. Launchy er einmitt dæmi um slíkt forrit, Spörri vinnufélagi minn á heiðurinn af því að benda mér á þetta. Þetta er brilliant forrit sem ef hægt að aðlaga að þörfum hvers og eins. Í stuttu máli má segja að þetta sé 1 access punktur inn í öll þín skjöl og/eða forrit. Þetta indexar allt heila klabbið og þú stjórnar nákvæmlega í hverju er leitað. T.d. getur þetta leitað í bookmarks ofl. Þetta er nákvæmlega það sem Quicksilver gerir í Mac og svipað concept og “ALT+F2″ í KDE linux. Ég mæli eindregið með því að fólk prófi þetta ef það er þreytt á því að þræða sig í gegnum start-programs-..-…
tækni 29 Feb 2008 06:27 pm
iTouch Pod eða var það öfugt?
Minns átti afmæli um daginn og fékk þessa líka svaka græju frá konunni…

Meiri upplýsingar um þetta hér.
Allt 25 Feb 2008 03:16 pm
Pínu þreyta
Þessi helgi var dugleg törn.. Frændsystkinahittingur á föstudaginn upp í sveit sem tókst mjög vel og engin meiri háttar drykkjulæti.. Tóti frændi var afar sprækur að vanda og sýndi á sér allar hliðar og fór á kostum í sögufrásögnum. Endaði á því að maður fór alltof seint að sofa miðað við dagskrá laugardagsins :/
Laugardagurinn var einfaldlega þannig að ég var upp í skóla að læra alveg þangað til ég fór á árshátíð með Fríðu hjá Tannlæknadeildinni þar sem Fríða sýndi meistaratakta í salsa. Sunnudagurinn fór svo í að læra frá A-Ö eða frá 11 þar til vel fram á nótt… nefni engann tíma hér
Fríða hefur sjálfsagt upplifað skemmtilegri konudag ég hef nokkur ár til að bæta henni það upp ![]()
Það hefði verið geðveikt að geta nýtt veðrið á sunnudaginn í eitthvað annað en að sitja inni að læra.. T.d. fara á krossarann, á snjóbretti, göngutúr / andaveiðar. Talandi um krossarann Sævar ku vera búinn að finna hina bestu iðnaðarskrúfur sem völ er á í krossdekkin. Hlakka ekki lítið til að prófa það.
tækni 11 Feb 2008 08:34 pm
Loksins einhver með viti - Word to PDF
Merkilegt nokk þá fann sá ég fyrstu nothæfu vb scriptuna um daginn. Hún gerir þér kleift að vista word skjöl á pdf formi án þess að A: Skjölin verða kjánaleg og B: opna word í hvert skipti. Scriptuna má nálgast hér. Þetta script var reyndar ekki alveg akkúrat það sem ég þurfti því að ég vildi geta haft scriptið á einum stað eða einfaldlega í “path” og geta keyrt það á word skjal hvar sem er á tölvunni og vistað sömuleiðis hvar sem er. Þannig að ef einhver vill mína útgáfu þá er það minnsta málið að pósta link á hana. Þetta var reyndar soldið skondið á tímabili… Ég var að skrifa ant scriptu sem kallaði í python scriptu sem kallaði í vbscriptu. Á endanum kippti ég reyndar skemmtilegasta forritunarmálinu út (Python, hvað annað…) til að einfalda ferlið. L8er
Allt 09 Feb 2008 12:26 am
Smá gola.. hmmm
Vindur mældist mest 137 m/s sjá hér.
Þetta er fáránlega mikill vindur sem þýðir 439,2 km/klst. Sæll eigum við að ræða þetta eitthvað??