About Hlöðver Þór Árnason
Ef það er ekki ennþá komið til skila þá heiti ég Hlöðver Þór Árnason. Ég er tölvunörd og er sérstaklega hrifinn af Python og django. En þessi síða er einmitt keyrð í django og skrifuð af mér með hjálp ýmissa gagnlegra django application-a eins og photologue, admin og comments. Ef eitthvað vantar hérna inni þá er því bætt við jafnóðum.
Hugmyndin er að hérna komi inn alls kyns efni eða greinar um eitthvað sem mér finnst áhugavert á þeim tímapunkti.
Ég er með B.Sc. í Hugbúnaðarverkfræði og er að vinna sem tæknistjóri hjá Já. Þar fyrir utan vinnur maður að ýmsum hobbýverkefnum og reynir að sinna áhugamálunum sem eru ansi mörg.
Ég er giftur Fríðu Bogadóttur og saman búum við í Garðabænum.
RSS