Hlöðver bloggar

2009-12-03 18:00:28

Búinn með B.S...

Það þarf þolinmæði og þrautseigni til þess að taka verkfræði með vinnu en það hafðist að lokum. Nú er maður loksins búinn með B.S. gráðuna! Var að klára síðustu tvo áfangana núna á haustönninni og svo er útskrift í febrúar.

Nú hefur maður enga afsökun lengur til þess að klára ekki þessa bloggsíðu ásamt öllum hinum hugmyndunum sem maður hefur ekki geta sinnt án þess að fá samviskubit yfir að vera að vanrækja skólann. Næstu mál á dagskrá fyrir þessa síðu eru réttri röð:
  • Comments
  • RSS feed
  • Undirsíður
    • Eldri færslur (Archive)
    • Aukasíður
  • Google sitemap
2 athugasemdir
Hlöðver Þór Árnason skrifaði (2009-12-05 23:45:18):
Commentin komin í gang! Notaði django.contrib.comments.. Frekar einfalt og mjög meðfærilegt. Next up: RSS feed.
Hlöðver Þór Árnason skrifaði (2009-12-06 18:54:49):
RSS straumur kominn inn líka! Tók mér 30 mín í að klára strauminn líka. Framfarirnar eru hraðar þessa dagana.. :)

Senda athugasemd...