Eldgos 2010
Fimmvörðuhálsinn
Fór í frábæra ferð með flugbjörgunarsveitinni um helgina. Fórum á föstudagskvöld um 23.30 upp í Skóga og gengum af stað Fimmvörðuhálsinn með allar græjur á bakinu. Svo tjölduðum við og gistum skammt frá Baldvinsskála (a.k.a. Fúkki) um kl. 03 um nóttina. Fórum að sofa um kl. 04. Vöknuðum fyrir 9 og pakkað saman og haldið af stað áfram í átt að gosinu. Spenningurinn jókst um helling þegar við vorum farin að heyra í gosinu og ekki síður þegar við sáum gosið yfir frá síðustu hæðarbrúninni. Röltum um svæðið og skoðuðum gosið vel á laugardeginum. Þarna var skítakuldi 12-16° frost fyrir utan vindkælingu sem er mikil í +10 m/s norðanátt. Borðuðum t.d. við hraunjaðarinn í hitanum og kíktum niður í Hrunagil en það var ekki mikið í gangi þar. Röltum aftur uppeftir og sáum eitt stykki flugvél (fisflugvél) nauðlenda / brotlenda í 100 metra fjarlægð þaðan sem við vorum að ganga. Hlupum strax af stað og könnuðum hvort að það væri í lagi með manninn og annað. FBSR fyrstir á staðinn ;). Að því loknu var tjaldað í ca. 1 km fjarlægð frá gosinu. Biðum fram á myrkur til að sjá gosið í öðru "ljósi". Tókum saman tjöldin og búnaðinn og fórum aftur að gosinu. Um kl. 21 var haldið af stað niður Fimmvörðuhálsinn. Um kl. 02 vorum við komin niður að Skógum. Þá stakk ég af þegar þau voru að fara að tjalda til að hefja seinni lið helgarinnar, sleðatúrinn...Sólheimajökull (sleði)

Kl. 08.30, eftir 3 tíma svefn, var farið á fætur og farið að undirbúa ferð dagsins. Við græjuðum nesti, sóttum sleðana keyptum bensín og vorum lagðir af stað uppúr 11. Ferðin upp að Sólheimajökli gekk ágætlega þó að vegurinn síðasta spottann væri frekar grófur. Við bombuðum uppeftir í rennifæri og gekk mjög vel. Að sjálfsögðu var myndavélin með og það varð til nóg af myndum sem ég set hér inn við fyrsta tækifæri. Við skoðuðum gosið mjög vel og vorum svo heppnir að hraunfossinn í Hrunagili var farinn af stað aftur. Það var magnað að standa á gilbrúninni í 100 metra fjarlægð og finna þennan rosalega hita ná alla leið til okkar. Við kíktum einnig niður í Fúkka og ætluðum að fá okkur nesti. Þar fréttum við af einum Pólverja sem var orðinn ofkældur og í slæmu ástandi. Við fórum uppeftir þar sem við vissum að björgunarsveitin frá Hellu var með vakt og létum þá vita. Því næst fórum við aðeins á rúntinn og heilsuðum aðeins upp á sleðaflokkinn úr FBSR. Við keyrðum í allar brekkur sem við fundum til að njóta þess að vera í sleðatúr og hittum svo á Grétar frænda og félaga hans sem voru á fjórhjóli. Við biðum alveg til 19 til að sjá gosið í ljósaskiptunum en ákváðum þá að drífa okkur af stað. Það leit vel út að við værum að keyra í hálfbjörtu til baka en þá skall á bylur með mjög miklum skafrenningi. Auk þess minnkaði birtan mikið og fljótlega var komið myrkur. Fyrst um sinn gátum við auðveldlega fylgt förunum sem voru þétt alla leið en svo skóf fljótlega að mestu yfir þau. Þá var nú ágætt að hafa GPS tækið. Með því gátum við tryggt að við værum á réttri leið þó að hægt færum. Þegar við vorum svo að setja sleðana á kerruna var alveg kolvitlaust veður. Við vorum svo lagði af stað niður frá jöklinum um kl. 21.30. Um kl. 00 vorum við á Bíldsfelli og ég náði að fara að sofa kl. 03 í Garðabænum.. Frábær helgi.. :D
RSS
Senda athugasemd...