2009-08-17 17:08:05
Smá hlaup
Þá er ég búinn að skrá mig í Reykjavíkurmaraþonið í 10 km hlaup. Þetta verður frekar létt skokk þar sem maður hefur ekkert æft neitt fyrir þetta. Ég tók reyndar 10km hlaup upp í sveit í gær til að kanna hvernig þetta myndi ganga. Ég var 53 mínútur með 10 km sem er ásættanlegt miðað við undirbúning. Þetta prufuhlaup minnti mig á nokkur mikilvæg atriði sem ég þarf að hafa í huga á laugardaginn kemur. Þau eru: ekki vera nýbúinn að éta, ekki fara of hratt af stað og að vera í léttum og þægilegum buxum. Ef ég lagfæri þessi atriði og tek inn í reikninginn að brekkurnar eru færri hér í bænum þá held ég að það sé nokkuð raunhæft að hlaupa þetta undir 50 mínútum.
RSS
Senda athugasemd...